New rectrictions due to COVID-19. Check all the information here
SKEMMTIMIÐAR

Bókanir og gjaldskrá

OPIÐ ALLA DAGA

10:00 - 17:00

HLUTFALL LEYFILEGS GESTAFJÖLDA
62%

Komdu í heimsókn

Þú átt þér vin í Laugardalnum
Í Fjölskyldugarðinum kennir ýmissa grasa, þar komast gestir í nálægð við alls konar dýr, geta fundið alls konar afþreyingu, neytt veitinga í veitingasölunni og notið þess að vera í fallegu og grónu umhverfi Laugardalsins.

GJALDSKRÁ

Aðgangseyrir og skemmtimiðar

  • Lýsing Verð (ISK)
  • Börn 0 til 5 ára Ókeypis
  • Börn 6 til 12 ára 720
  • 13 ára og eldri 940
  • Elli- og örorkulífeyrisþegar Ókeypis
  • Skemmtimiði 360
  • 10 Skemmtimiðar 2.900
  • 20 Skemmtimiðar 5.300
  • Dagpassi í leiktækin, aðgangseyrir ekki innifalinn 2.430
  • Einstaklingsárskort * 10.900
  • Elli- og örorkulífeyrisþegar Ókeypis
  • Árskortatilboð (2 fullorðnir og 4 börn) ** 21.400
  • Plús 1 á árskortið *** 10.900
  • 10 skipta kort - Börn (6-12 ára) 5.760
  • 10 skipta kort - Fullorðnir (13+ ára) 7.520
  • 10 skipta kort - Dagpassi 19.440

*árskortum fylgja dagpassar í hverri heimsókn
** börn eru yngri en 18 ára
*** Með plús á árskorti getur þú boðið einum gesti með í garðinn við hverja komu, hægt er að kaupa fleiri en einn plús.

OPIN LEIKTÆKI

Dagsetning

Opið í eftirfarandi leiktæki
Frá kl. 10:30 til kl. 17:00.

Hringekja

Lest

Fallturn

Rugguskipið Elliði

Ökuskóli

Bátar

Sleggjan

Uppfært þann Date. Með fyrirvara um breytingar

Hvernig kemst ég í garðinn ?

Með strætó

Strætisvagnar sem stöðva næst garðinum eru vagnar númer 2, 5, 15 and við gatnamót Vegmúla og Suðurlandsbrautar. Stöðin kallast Laugardalshöll.

Með einkabíl.

Fjölskyldugarðurinn er í Laugadalnum og deilir bílastæði með Skautahöllinni. Bílastæðin þar eru ókeypis.

Á reiðhjólinu eða gangandi

Það liggja reiðhjóla- og göngustígar að Laugardalnum úr öllum áttum. Hjólagrindur eru við innganginn.

Vinsamlega athugið

Gestum er ekki heimilt að koma með gæludýr sín í garðinn né ferðast um garðinn á hjólum, hjólaskautum, hjólabrettum, hlaupahjólum og öðrum slíkum fararskjótum.

Ekki bara húsdýr

Íbúar garðsins eru fleiri en margir halda. Að auki við algengustu húsdýrin finnur þú þar heimskautarefi, minka, hreindýr og seli. Þá er þar nokkur fjöldi framandi dýra.

Eitthvað fyrir alla, alla daga ársins

Leiktæki sem þurfa mönnunar við eru opin alla daga yfir sumarið og um helgar á haustin og vorin ef veður leyfir. Önnur leiktæki eru opin allt árið.

Matur og drykkur

Gestir eru hvattir til að koma með nesti til að nota á rafmagnsgrillunum í Fjölskyldugarðinum en einnig er hægt að kaupa pylsur hjá okkur. Í veitingasölunni er hægt að kaupa samlokur, skyr og skyrdrykki, súpur, sætabrauð, sælgæti, ávexti og alls kyns drykki.

Fræðsludagskrá

Í boði eru margvísleg námskeið fyrir leik- og grunnskóla, ýmist í formi leiðsagnar eða með öðrum upplifunum. Við hvetjum kennara til að taka þátt í verkefnum og undirbúa nemendur sína vel fyrir ferðina. Von okkar er að áfram verði unnið með þann fróðleik sem vinnst í garðinum eftir að í skólann er komið.

Skoðaðu garðinn

Viltu fá fréttir frá okkur!

Fáðu fréttir beint með tölvupósti.
This site is registered on wpml.org as a development site.